ChatGPT Space

Fólk og gervigreind vinna saman

Space hjálpar þér að búa til lifandi skjöl með ChatGPT og samstarfsfólki þínu. Haltu vinnunni á einu sameiginlegu svæði þar sem þú getur kallað á ChatGPT, Codex eða dot-aðstoðarmanninn þinn til að hjálpa — og þið getið byggt áfram á sameiginlegum upplýsingum. Samvinna í glærum og töflureiknum er væntanleg.

Í boði með Pro-, Business- og Enterprise-áskrift.

Sköpum, vinnum og byggjum saman

Öflugar síður sem uppfærast sjálfar

Ný tegund skjala, hönnuð fyrir vinnu með aðstoðarkerfum — skrif, myndræna framsetningu, rannsóknir og forritun. Síður geta haldist uppfærðar með upplýsingum úr tengdu verkfærunum þínum, svo þú getir einbeitt þér að vinnunni en ekki að uppfæra skjalið.

Samvinna með gervigreind

Breyttu síðum með samstarfsfólki í rauntíma, gefðu ábendingar í athugasemdum og merktu ChatGPT eða dot-aðstoðarmanninn þinn til að gera breytingar eða taka næstu skref — allt á sömu síðunni.

Heimili sameiginlegrar þekkingar

Safnaðu skrám, síðum, glærum, töflureiknum og öðru efni teymisins á einn sameiginlegan stað. ChatGPT og dot-aðstoðarmaðurinn þinn geta notað þessar upplýsingar til að hjálpa teyminu að byggja á því sem þegar hefur verið gert.

Sjáðu hvað er hægt þegar ChatGPT er hluti af teyminu

Frumgerð að móttöku nýrra notenda á sameiginlegri síðu í Space, með bendlum samstarfsfólks og hliðarstiku.

Settu fram frumgerðir, rannsóknir, gögn eða lykilákvarðanir á myndrænan hátt beint á síðu. Breyttu efninu með teyminu þínu og merktu ChatGPT, Codex eða dot-aðstoðarmanninn þinn til að vinna úr breytingum.

Vinna með dots í Space

Dots vinna beint með skrár í Space. Hvar sem þú vinnur með dot-aðstoðarmanninum þínum — í ChatGPT, með textaskilaboðum eða í Slack — geturðu líka beðið hann að halda síðunni uppfærðri þegar áætlanir breytast.

Kynningaráætlun með herferðartexta sem Alfred hefur auðkennt og athugasemd um að Alfred hafi búið til drög að forsíðu vefs.

Svona hefstu handa

Biddu ChatGPT að breyta fyrirliggjandi samtali í síðu eða glærur, eða byrjaðu með sniðmát.

Sniðmátaspjöld fyrir Velkomin í Space, daglegan verkefnalista og stjórnborð verkefnis.

Algengar spurningar

Safn heitir nú Space hjá Pro-, Business- og Enterprise-notendum í vafra, tölvuforriti og farsíma. Búðu til og breyttu síðum og glærum í samvinnu við aðra í vafra og tölvuforriti og skoðaðu þær í farsíma. Breytingar og samvinna í farsíma eru væntanlegar.

Skoðaðu meira

  • ChatGPT Learn

    Skoðaðu hagnýtar leiðbeiningar og dæmi um hvernig þú getur hafist handa með ChatGPT Space.

  • ChatGPT Work

    Sjáðu hvernig ChatGPT Work breytir upplýsingum úr verkfærum þínum og skrám í fullbúin skjöl, kynningar og greiningar.

  • Viðbætur í ChatGPT

    Tengdu verkfærin sem þú notar daglega til að sækja bakgrunnsupplýsingar og ljúka verkefnum beint í ChatGPT.

Sköpum saman í Space